157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:33]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ræða hæstv. utanríkisráðherra vakti kannski helst athygli fyrir það að það kom ekkert nýtt fram þar. Það var haldið áfram með sömu blekkingarnar sem löngu er búið að hrekja. Ég verð að láta fylgja sögunni að mér þykir ekki sæmandi fyrir íslenskan utanríkisráðherra að þykjast vera alveg úti á þekju um hvað felist í Evrópusambandsaðild og vera bara forvitinn og langa að komast að því hvað felist í aðild að ESB. Það var haldið áfram með gömlu frasana; dönsku sumarbústaðirnir sem samið var um 1972 og ekki við Evrópusambandið, ekki einu sinni við Evrópubandalagið heldur Efnahagsbandalag Evrópu sem þá var starfandi; lítið gert úr Stefan Füle sem er bara farinn og hættur og þess vegna ekkert lengur að marka það sem hann sagði, og vitnað í Mörtu Kos sem sagði reyndar að allir samningar um inngöngu væru ólíkir. Hvers vegna er það? Það er vegna þess að ríkin eru ólík og þurfa að uppfylla mismunandi kröfur Evrópusambandsins en þeir eiga það allir sameiginlegt að snúast eingöngu um það að ríkið útskýri hvernig það ætli að uppfylla þær kröfur sem það hefur ekki uppfyllt þá þegar. Það er nú allur fjölbreytileikinn í viðræðunum. Það að hæstv. ráðherra skuli leggja upp með það að nálgast málið af ótta, heimurinn sé svo hræðilegur að nú þurfi að leita skjóls hjá Evrópusambandinu — Ísland varð fullvalda ríki í framhaldi af fyrri heimsstyrjöldinni. Það varð lýðveldi í seinni heimsstyrjöldinni. En spurning mín til hæstv. ráðherra er einföld og vonandi fæ ég svar. Hæstv. ráðherra segir að hann muni aldrei skrifa undir samning sem á einhvern hátt tryggir ekki yfirráð okkar yfir auðlindum: Á hæstv. ráðherra við full og varanleg yfirráð Íslands yfir auðlindum?