þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sínar vangaveltur sem hann beinir til mín. Ég skil heldur ekki, virðulegi forseti, þann tvískinnung sem mér finnst vera hjá forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar þar sem í málflutningi ríkisstjórnarinnar er talað um að halda eigi áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu þegar í greinargerðinni er jafnframt vísað til þess að umsóknin hafi ekki verið afturkölluð, en síðan hefur forsætisráðherra ítrekað talað um það opinberlega að það eigi að hefja aftur aðildarviðræður á næstu mánuðum. Ég hlýt því að spyrja stjórnarmeirihlutann: Hvort á að halda áfram eða hefja nýjar viðræður? Ef það á að hefja nýjar viðræður hlýtur meiri hlutinn hér og ríkisstjórnin að ætla að koma með samningsmarkmiðin eða þau skilyrði sem við Íslendingar ætlum að setja okkur í þessum aðildarviðræðum.