þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir sína ræðu þar sem komið var inn á margar málefnalegar spurningar. Hvernig fáum við eiginlega úr því skorið hvað okkur býðst í aðildarsamningi umfram EES-samninginn? Ég vil samt sem áður fá að koma á framfæri hér að mér finnst ekki góður bragur á því að verið sé að gera heimsóknir erlendra fulltrúa tortryggilegar enn og aftur hér í þingsal og ég vil biðla til hv. þingmanns að láta það ekki verða leiðarstef í þessari umræðu.
Ég vil spyrja hv. þingmann að nokkru og reyni ég að koma því að á stuttum tíma. Hvernig getum við spurt þjóðina með öðrum hætti en þeim sem lagt er upp með hér, nákvæmlega þessu? Hvað fæst með aðildarsamningi umfram EES? Hvernig getum við komist að þessu öðruvísi? Og fyrst hv. þingmaður sagðist treysta þjóðinni, mun hv. þingmaður virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fram fer hér síðar á árinu (Forseti hringir.) ef svarið reynist já?