157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:42]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hans svar. Ég skil hann sem svo að hann hafi verið svona mildur Evrópusinni árið 2009 en síðan hafi þessi skýrsla Hagfræðistofnunar 2014 fært hann á einhvern annan stað. En af því að það er líklegt að það verði samþykkt að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu og það er líklegt að það verði spurt um það hvort halda eigi áfram viðræðum við Evrópusambandið, þá langar mig í fyrsta lagi að spyrja hvort hann og hans flokkur muni styðja slíka atkvæðagreiðslu. Hér eru þrír takkar í þinginu, grænn, gulur og rauður. Mig langar að vita hvert líklegt er að fingur þingmanna Miðflokksins rati þegar þessi tillaga verður tekin til afgreiðslu hér í salnum. Í öðru lagi langar mig að spyrja: Verði niðurstaðan í slíkri kosningu já, mun hann telja sig bundinn af slíkri niðurstöðu, þ.e. mun hann síðan, ef hann kemst í ríkisstjórn og aðstöðu til að vinna eftir þessari niðurstöðu, fylgja þeirri niðurstöðu að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið, ef Ísland velur það, og koma heim með samning og leggja hann í dóm þjóðarinnar? (Forseti hringir.) Eða mun hann draga umsóknina til baka og verður það þá gert með þingsályktunartillögu eða öðru bréfi?