þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég velti fyrir mér, þegar ég hlustaði á ræðu hv. þingmanns, hvort þetta væri sami Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og lofaði þjóðinni þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald málsins árið 2013, alla vega var þá til Sigmundur Davíð sem trúði á þjóðina. Hann sveik það síðan, en trúði alla vega um stundarsakir á þjóðina. Svo hlustaði ég á ræðu hér áðan sem mér fannst einkennast af ósvífni og brigslyrðum, ósvífni sem kannski kemur mér ekki á óvart þessa dagana þegar ég les um það í miðlum að flokkur hans, Miðflokkurinn, hafi farið á fundi og farið á námskeið hjá tiltekinni hreyfingu vestan hafs (Gripið fram í.) og sú hreyfing er ekki síst fræg fyrir það að ýta undir upplýsingaóreiðu, ýta undir öfgar og ýta undir sundrungu í Evrópu. Ég velti fyrir mér: Eru þetta áhrifin sem hv. þingmaður vildi ná fram áðan með sinni ræðu? Er þetta það sem hv. þingmaður vildi ná fram með ræðu sinni, upplýsingaóreiðu og sundrungu?