157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:53]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég held að það sé ágætt að fá það á hreint hvort það hafi nú orðið af þessum ferðum og fundum og bara ágætt ef hv. þingmaður svarar því. En það er verið að velta fyrir sér alls konar áhrifum, áhrifum frá Brussel, áhrifum frá Kína, áhrifum frá Bandaríkjunum. Ég held hins vegar ekki að íslenska þjóðin sé þar, að hún vilji þessi áhrif sem eru til að mynda vestan hafs. Ég held að hún vilji einmitt fá tækifæri til að greiða atkvæði um nákvæmlega þá tillögu sem hv. þingmaður lagði fram 2013 en treysti sér síðan ekki til að uppfylla það loforð heldur sveik það loforð. Um það snýst þetta mál, að virða þjóðarviljann. Hafa spurninguna einfalda, fá fram samning og ég fagna því líka að hv. þingmaður sé farinn af þeim vagni að það sé ekkert um að semja yfir í það að ræða m.a. samningsmarkmiðin. Það er mikilvægt, að mínu mati, fyrir íslenska þjóð að fá samning á borðið og vega og meta kalt kosti og galla þess sem fylgir slíkum samningi. (Forseti hringir.)

Mín spurning er: Getum við alla vega ekki verið sammála um það að þjóðarviljinn er ekki ógn við fullveldið?