157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:54]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Jú, við erum sammála um það en þá þarf viljinn að fá að koma fram, byggður á réttum upplýsingum. Ef menn raunverulega treysta þjóðinni til að taka ákvörðun þá ættum við líka að treysta henni fyrir upplýsingum sem þessi ríkisstjórn virðist ekki gera og er bara ergileg yfir því að við séum að ræða þetta mál og benda á eitt og annað og hvað snýr upp og niður í þessu. Ég hef engar áhyggjur af því og alls engan áhuga á því að Bandaríkin eða Kína eða Indland eða Portúgal eða hver sem er skipti sér af þessari þjóðaratkvæðagreiðslu, enda held ég að það sé ekki efst á forgangslistanum hjá þessum þjóðum eða öðrum. Það er bara einn aðili, erlendur aðili, sem hefur lýst því yfir að hann ætli að beita sér og reka áróður í tengslum við væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er Evrópusambandið sjálft.