þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Af henni má ráða að þingmaðurinn leggist gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Mér fannst ég samt greina ákveðna samúð með þessari þjóðaratkvæðagreiðslu, því máli sem hér um ræðir, þ.e. þessari fyrri þjóðaratkvæðagreiðslu sem felur í sér eða á að fela í sér einhverja ákvörðun um að fara í þessar viðræður, að fara í aðildarviðræður. Ég velti því fyrir mér hvort þingmaðurinn hafi einhverja skoðun á því, þegar hann nefnir að hann treysti þjóðinni og að þjóðin eigi að ákveða þetta, hvort það ætti að vera einhver lágmarksþátttaka þjóðarinnar í þessari atkvæðagreiðslu. Eða hvort honum finnist þjóðin hafa talað ef 20% þjóðarinnar taka kannski þátt í kosningunni og 50,1% segja afstöðu sína í þessu máli.