157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:24]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Víði Reynissyni kærlega fyrir andsvarið. Ég get glaður farið yfir ræðuna aftur með honum hér frammi, ef hann missti eitthvað úr henni. Það er alveg augljóst og Framsóknarflokkurinn hefur sagt það, og ég sagði það ítrekað hér í ræðu minni, að hann treystir þjóðinni í þessu máli eins og í öðrum málum. Það skiptir hins vegar máli, virðulegur forseti, hvernig er spurt, hvaða upplýsingar liggja á bak við, hvaða upplýsingar liggja á borðinu í aðdraganda þess að við göngum til þessarar atkvæðagreiðslu. Í mínum huga er það kannski það sem við erum að ræða hér í dag; hvaða upplýsingar liggja á borðinu, hver eru samningsmarkmiðin, hverju ætlum við að ná út úr þessu? Hvar ætlum við að draga línu? Mér finnst þetta vera óljóst, virðulegur forseti, og ég hef sagt það ítrekað hér í dag, varðandi þessi samningsmarkmið, að það sé afskaplega sérstakt að ætla að koma með útfærð samningsmarkmið eftir þjóðaratkvæði. Ef þjóðin segir já þá ætlum við að fara í málið. Mér finnst þetta sérstök leið.