157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:26]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Það kom mér svo sem ekkert sérstaklega á óvart að ég og hv. þingmaður, þótt við höfum oft og iðulega verið mjög sammála, værum ósammála í þessu máli. Ég hefði eiginlega getað sagt hv. þingmanni það hér snemma í morgun áður en umræðan hófst að við myndum nú sennilega ekki alveg smella saman í dag eins og oft áður en það er nú bara þannig.

Varðandi öryggis- og varnarmálin eða öryggis- og löggæslumálin þá skal ég bara alveg viðurkenna að ég hef bara ekki skoðað þá hlið sérstaklega, þótt ég hefði sennilega átt að vera búinn að gera það þá er það eitthvað sem ég hef ekki kynnt mér. Hins vegar veit ég að samstarf lögreglunnar við erlendar stofnanir hefur verið mjög gott í dag, bæði við Europol og Interpol og ekki síst við systurstofnanir okkar og löggæslustofnanir á Norðurlöndum, í Bretlandi, jafnvel í Bandaríkjunum. Ég man eftir því þegar ég var ungur maður að vinna í greiningardeild ríkislögreglustjóra að samskipti okkar við systurstofnanir greiningardeildar t.d. á Norðurlöndunum voru mjög náin, líka í Bretlandi, þannig að ég hef tilfinningu fyrir því — án þess þó, eins og ég sagði hér í upphafi, að hafa skoðað þetta kannski sérstaklega — (Forseti hringir.) að við getum auðvitað alltaf gert betur og meira í núverandi kerfi þannig að ég veit ekki hvað við myndum græða (Forseti hringir.) mikið á því að fara inn í Evrópusambandið hvað það varðar. Ég held að þær leiðir séu til staðar í dag. — Ég þakka hæstv. forseta fyrir aukamínútu sem nýttist mér afskaplega vel.