157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:39]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég ætla að spyrja um nokkra hluti. Í fyrsta lagi byrjaði hv. þingmaður á að tala um að við þyrftum að ganga í ESB til að sýna fram á með hverjum við stöndum. Nú erum við ekki í ESB. Er það eitthvert vafamál? Er ríkisstjórnin ekki alveg viss um hvar Ísland stendur? Það sama á við um Noreg. Vita menn ekki hvar við stöndum í heiminum?

Nú er Evrópusambandið algjörlega ósammála því, og hefur verið lengi, að þetta séu einhverjar samningaviðræður. Er Evrópusambandið að skrökva? Og svo er það hitt, sem er kannski aðalatriðið: Við vitum hvað felst í því að vera í Evrópusambandinu. Þetta er bara blekkingarleikur sem hér er á ferðinni hjá stjórnarliðum. Þetta gengur út á það að við erum að færa völd frá Íslandi til Brussel. Hv. þingmaður verður að útskýra það fyrir þjóðinni af hverju það er gott að færa völd sem við höfum frá Alþingi Íslendinga og sveitarstjórnum yfir til Brussel.