157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:49]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Minn skilningur er ekki bara sá að þetta séu aðlögunarviðræður heldur einnig að það komi til að við þurfum að breyta lögum sem stangast á við Evrópulöggjöf. Ég get ekki ímyndað mér að það taki stuttan tíma. Ég veit ekki hvort menn ætli að spóla í það strax, en þannig hef ég skilið það þegar þjóðir hafa sótt um aðild að Evrópusambandinu.

Í mínu seinna andsvari langar mig að spyrja hv. þingmann spurningar sem er svolítið af öðrum meiði. Hún talaði hér um ýtrustu kröfur, við ættum að halda á lofti ýtrustu kröfum. Er þá ekki eðlilegt að spyrja: Hvað er góður samningur í hennar huga? Góður samningur fyrir einn getur verið slæmur fyrir annan. Í hennar huga, hvað er góður samningur fyrir Ísland? Eru það til að mynda alger yfirráð yfir auðlindum okkar? Getum við samið um það? Hvað finnst þingmanninum?