157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:57]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir að komast í andsvar því að ég taldi að það væri fullt áðan. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og eldmóðinn, mikill eldmóður sem býr í hjarta hv. þingmanns til þessa máls og áhugavert að hlusta á það. En ég verð að taka undir fyrirspurn sem hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir kom með varðandi tímasetningu á þessari þjóðaratkvæðagreiðslu. Hv. þingmaður svaraði því einhvern veginn til að það væri fínt fyrir okkur að fara inn í næsta þingvetur búin að afgreiða þetta mál.

Mig langar að spyrja: Telur hv. þingmaður í alvöru að það sé hægt að kasta fram slíku, að það eigi bara að vera þægilegra fyrir okkur að vera ekki að takast á um Evrópusambandsaðild og áframhald viðræðna? Er ekki ákveðinn óskýrleiki í því fólginn og kannski ekki svo upplýst umræða í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu að ákveða að fara fram með þjóðaratkvæðagreiðslu í lok sumars þegar við vitum jú að fólk er í sumarfríum út um hvippinn og hvappinn og þessi stofnun hér, sem er með þjóðkjörna lýðræðislega fulltrúa inni, hefur ekki tækifæri til að koma að umræðu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu? Er það ekki í rauninni ósanngjarnt að setja málið (Forseti hringir.) þannig upp að hér eigi sér ekki stað umræða hinna kjörnu fulltrúa, sem almennt þekkja nokkuð vel til þessara mála, í aðdraganda slíkrar atkvæðagreiðslu?