157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:03]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir að mæla fyrir þessu máli. Hér erum við að ræða mikilvægan lið í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, mál sem snýst í kjarna sínum um lýðræðislegt umboð. Á Ísland að halda áfram viðræðum um aðild að Evrópusambandinu? Þessi tillaga snýst um að fjölga valkostum þjóðarinnar. Hún snýst um að ljúka viðræðum, fá skýran og góðan samning og leyfa þjóðinni að taka upplýsta ákvörðun í kjölfarið.

Ég hef aldrei legið á þeirri skoðun að full aðild að ESB sé Íslandi til hagsbóta en umboðið til að ráðast í þetta ferli þarf að liggja skýrt fyrir. Af því að hér er stundum talað um einhver kosningasvik þá væri gaman ef fólk myndi ákveða sig hvort þetta sé eina stefnumál Viðreisnar eða að það að fylgja því eftir séu einhver sérstök kosningasvik. Hvort tveggja getur augljóslega ekki gengið upp. Við höfum alltaf verið mjög skýr með okkar afstöðu hvað það varðar að við viljum ganga í Evrópusambandið og líka að við viljum leyfa þjóðinni að greiða atkvæði um þetta mál í tvöfaldri atkvæðagreiðslu.

Evrópusambandið er fyrst og fremst pólitískt bandalag fullvalda ríkja sem deila með okkur grunngildum um lýðræði og mannréttindi og nokkrum öðrum gildum líka. Við þekkjum kosti þess að starfa náið með þeim þjóðum sem eru okkur líkastar. Norðurlandasamstarfið er gott dæmi um farsælt verkefni þar sem við tölum oft einni röddu. Með sama hætti myndum við styrkja okkar stöðu með því að sitja við borðið þar sem stærstu ákvarðanir álfunnar eru teknar. Þessi pólitíska ástæða verður ekki auðveldlega metin til fjár en skiptir engu að síður máli. Við eigum að eiga fleiri bandamenn en ekki færri og við eigum að styrkja tengsl við líkt þenkjandi þjóðir.

Í dag tökum við upp stóran hluta evrópsks regluverks í gegnum EES-samninginn án þess að hafa kannski mjög mikið um það að segja de facto. Við þiggjum þessar reglur, stundum með þökkum, stundum með dassi af efasemdum, en sköpum þær ekki beint. Með aðild fengjum við sex fulltrúa á Evrópuþingið, atkvæðarétt í ráðherraráðinu og fulltrúa í framkvæmdastjórnina sem ríkisstjórn Íslands myndi tilnefna. Sumir reyna að smætta þetta niður í lágar prósentur og láta eins og rödd okkar myndi þá bara hverfa alveg. En ef við hugsum þannig gætum við aldrei tekið þátt í neinu alþjóðasamstarfi. Reynsla okkar af Schengen og Frontex og öðrum stofnunum þar sem við ráfum um gangana í Brussel sýnir okkur að hagsmunir eru ekki fótum troðnir. Þvert á móti byggir menning Evrópusambandsins á því að reynt sé að komast að sameiginlegri niðurstöðu í flestum málum og rödd allra ríkja skipti máli.

Síðan er það gjaldmiðillinn. Við búum vissulega við gjaldmiðil sem er sérsniðinn fyrir okkur en hann þjónar okkur ekkert sérstaklega vel. Við búum við hærri vexti og meiri verðbólgu en nágrannar okkar og þannig hefur það verið lengi. Það hafa ekki allir fjármálaráðherrar lýðveldisins verið kjánar, vandinn er kerfislægur. Þegar fólk varar við evrópsku atvinnuleysi gleymist oft að munur milli aðildarríkja er gríðarlegur. Þau ríki sem eru okkur líkust, ef við tökum t.d. Danmörku, búa við svipað atvinnuleysi og við en miklu lægri vexti. Evran er auðvitað ekki töfralausn en hún er tæki til aukins stöðugleika.

Síðan er það viðskiptalegt öryggi. Við sjáum því miður vaxandi tolla og viðskiptahindranir í heiminum. Viðskipti eru í auknum mæli vopnvædd til að ná fram geópólitískum markmiðum. Við sáum þetta þegar Danir stóðu frammi fyrir þrýstingi vegna Grænlands. Það skipti öllu máli að hafa Evrópusambandið með sér í liði. Fulltrúar danskra stjórnvalda, danskir þingmenn, hafa sjálfir sagt þetta: Að vera hluti af öflugri viðskiptablokk styrkir efnahagslegar varnir okkar og þar með fullveldi okkar.

Það hefur borið á þeim áróðri, vil ég segja, að það sé ekkert um að semja, að þetta séu bara aðlögunarviðræður. Evrópskir ráðamenn nota orðið „negotiations“, eða samningaviðræður, og það hef ég heyrt frá sendiherra hér á landi, frá öðrum fulltrúum sambandsins. Nýlegar yfirlýsingar á fundi forsætisráðherra Íslands og Póllands, yfirlýsingar af hálfu leiðtoga eins af stærstu ríkjum Evrópusambandsins, að Evrópusambandið þurfi að sýna meiri sveigjanleika, því þannig var það orðað, Evrópusambandið þyrfti að sýna meiri sveigjanleika. Þetta eru góðar fréttir fyrir íslenska þjóðarhagsmuni. Sama gildir þegar kemur að nýlegum yfirlýsingum stækkunarstjórans, Mörtu Kos. Þetta eru góðar fréttir fyrir okkar þjóðarhagsmuni og við eigum auðvitað að hugsa um okkar þjóðarhagsmuni.

Þeir sem vitna í 15 ára gamla bæklinga og heimasíður eru ekki endilega að tala fyrir hagsmunum Íslands heldur, vil ég meina, að endurtaka samningsmarkmið, í einhverjum tilfellum gömul samningsmarkmið viðsemjenda okkar. Við eigum að hugsa um okkar samningsmarkmið og okkar þjóðarhagsmuni og að mínu mati höfum við hag af því að láta reyna á þetta samband við Evrópusambandið og bera svo hinn endanlega aðildarsamning undir þjóðina.

Hér var aðeins rætt um tímasetningu áðan, hvort hún hentaði vel eða ekki. Það er kannski fyrirsjáanleg gagnrýni. Ég held að það hefði hentað miklu betur að afgreiða þetta mál miklu fyrr, jafnvel bara í upphafi ferilsins árið 2009, eða síðan þegar þessu var slegið á frest að láta fara fram atkvæðagreiðslu um það. Það að gera það ekki hefur líka skapað, hvað skal segja, gjá og skautun í samfélaginu sem hefur ekki að fullu leyti gróið og að mörgu leyti er kostur að þetta mál sé ekki inni í miðju þinghaldi. Ég get ímyndað mér að það geti verið ákveðinn kostur við það eins og er í kringum sveitarstjórnarkosningar þar sem ákveðið rými er skapað áður en kosningarnar fara fram til þess að ákveðin sjónarmið fái sviðið og ég efast ekki um að verði sótt mikið í það að þingmenn og aðrir sem hér sitja á þingi taki þátt í umræðum og kosningabaráttu í sjónvarpsþáttum fyrir bæði já- og nei-hreyfinguna.

Er tímasetningin fullkomin? Já, ég held að það sé ágætt að hún sé ekki inni á miðju þingi og fyrst og fremst er það mín skoðun að það sé gott að greiða atkvæði um þetta mál fyrr en seinna vegna þess að ef þetta er eitthvert mál sem núverandi ríkisstjórn ætlar að halda áfram með þá er ekki órökrétt að hún hafi smá tíma til þess að vinna úr þessari niðurstöðu. Ef það kemur já þá fær ríkisstjórnin smá tíma til þess að fara og senda bréf til þessara alþjóðastofnana og tala við fólk í Brussel og hefja þessar viðræður. Ef við myndum gera þetta í árslok 2027 væri mjög lítill tími eftir til að ná nokkru fram, þannig að að mínu mati því fyrr því betra.

Virðulegur forseti. Ég vil að lokum segja að ég hef heyrt því haldið fram að við eigum að halda okkur til hlés og styggja ekki önnur stórveldi og að þessi umræða geti flækt samband okkar við Bandaríkin. Það finnst mér ekki góð nálgun. Mörg ríki innan ESB, ég nefni t.d. Pólland og Þýskaland, eru meðal nánustu bandamanna Bandaríkjanna og þannig sé ég fyrir mér að við verðum. Við verðum öflugur bandamaður Bandaríkjanna innan Evrópusambandsins, NATO-ríki innan Evrópusambandsins, eins og langflest ESB-ríkin raunar eru, og við eigum ekki að stunda neina minnimáttarkennd í okkar utanríkisstefnu. Við eigum að þora að taka okkar ákvarðanir, ekki út frá ótta við viðbrögð annarra heldur því hvað er best fyrir okkur. Við erum fullvalda þjóð, við ráðum okkar vegferð sjálf og við eigum öll að standa saman um þann sjálfsákvörðunarrétt í þessum sal og leyfa þjóðinni að taka þessa ákvörðun.

Virðulegi forseti. Ég hef lokið máli mínu.