157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:23]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég er ekki ein af þeim sem halda því fram að Evrópusambandið sé eina þingmál og baráttumál Viðreisnar. Mér er nú tíðrætt um jafnlaunavottun (Gripið fram í: Það er rétt. )og það virðist manni kannski ástæðan fyrir taugatitringi hér í dag að þegar þetta ár er á enda gætu bara bæði forgangsmál Viðreisnar verið úr sögunni, þannig að ég skil það vel.

Mig langar til að spyrja hv. þingmann og formann utanríkismálanefndar út í málsmeðferð málsins og hvort hann muni sem formaður nefndarinnar ekki beita sér fyrir því að þetta mál fái vandaða og heiðarlega umfjöllun í nefndinni. Mig langar líka að spyrja út í dagsetninguna, vegna þess að ég heyrði að hv. þingmaður sagði hér áðan að honum þætti þetta góð dagsetning af því að hún væri ekki að þvælast fyrir þingstörfum, ef ég skildi hann rétt, næstkomandi haust. En mig langar að spyrja út frá almenningi og hlutverki okkar við að miðla upplýsingum til almennings, m.a. frá stjórnvöldum, hvernig honum þyki þessi dagsetning horfa við almenningi.