þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Það er rétt hjá hv. þingmanni að myndin sem ég dró upp í ræðu minni er bara einfaldlega myndin sem Evrópusambandið sjálft teiknar upp. Þessar upplýsingar eru aðgengilegar á heimasíðu Evrópusambandsins og varða vinnuna sem fer af stað ef svarið er já, varðandi það hvort að farið skuli af stað í aðlögunarviðræður við Evrópusambandið. Þá segir Evrópusambandið einfaldlega, með leyfi forseta:
„Umsóknarríki verða að samþykkja regluverkið áður en þau geta gengið í Evrópusambandið. Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. Hversu hratt viðræðurnar gangi fyrir sig fari eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagist regluverki sambandsins.“
Einhverjir vilja kannski koma hér á eftir mér og halda því fram að Evrópusambandið sé að ljúga þegar það heldur því fram á heimasíðu sinni að mælikvarði á hraða viðræðna og hversu vel gangi sé einfaldlega hversu fljótt (Forseti hringir.) ríki geti tekið upp og aðlagast regluverki sambandsins. En þeir verða þá að gera það, ekki ætla ég að gera það.