157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:55]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Mig hefur eiginlega brostið þolinmæðina að bíða eftir tækifæri til að eiga orðastað við hv. þingmenn Flokks fólksins til að draga enn fram það sem ég hef áður nefnt hér í andsvörum í dag sem ég tel vera augljósa mynd að teiknast upp; hér er ekki þingmeirihluti fyrir þeirri vegferð sem boðuð er. Það er aðeins fyrir örfáum dögum síðan á blaðamannafundi að formaður Flokks fólksins sagði frá því að þau hefðu aldrei haft neitt á móti því að setja þetta í dóm þjóðarinnar, þau væru bara á móti inngöngunni.

Fyrir kosningar fengu allir flokkarnir spurningar og þar á meðal þessa:

„Mun flokkurinn á næsta kjörtímabili styðja það að tekin verði skref í áttina að inngöngu í Evrópusambandið, til dæmis með þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort sótt verði á ný um aðild að sambandinu? “

Nei var svarið frá Flokki fólksins. Því spyr ég hv. þingmann hvort það sé ekki algerlega augljóst mál að það er ekki þingmeirihluti fyrir að halda áfram með málið.