þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég tek undir það að þögn og fjarvera hv. þingmanna Flokks fólksins er algerlega ærandi. Nú gengur inn í salinn (Gripið fram í: Já. ) hv. þingmaður og varaformaður utanríkismálanefndar. Hann var ekki kominn á mælendaskrá síðast þegar ég gáði en við bíðum spennt eftir því. Hann er a.m.k. kominn mjög nálægt hæstv. forseta, e.t.v. til að skrá sig á mælendaskrá. Annars lýsi ég auðvitað eftir afstöðu og máli hv. þingmanna Flokks fólksins, ekki síst varaformanns nefndarinnar sem er hér í þingsal sem stendur. Það er auðvitað augljóst, og ég kom inn á það í ræðu minni hér áðan, að það er ekki þingmeirihluti fyrir þessari vegferð. Þessu máli var hafnað í síðustu kosningum. Það er auðvitað stórundarlegt að vera í þeirri stöðu að við séum að þrasa um þetta mál hér á Alþingi þegar verkefnin eru ærin. En það er nú eins og það er. Flokkur fólksins hefur auðvitað fengið ýmislegt fyrir sinn snúð í skiptum fyrir stuðninginn við þetta þing- og stefnumál Samfylkingar og Viðreisnar. En ég tek undir (Forseti hringir.) umkvartanir hv. þingmanns og auglýsi hér með eftir ræðumönnum frá Flokki fólksins.