157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:59]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Það væri óskandi að hv. þingmenn Flokks fólksins kæmu bara í pontu og stæðu fyrir sínu máli í stað þess að vera pískra við hv. þingmenn hér í salnum eða frammi á gangi og ég þá hvet eindregið til þess.

Varðandi það sem hv. þingmaður spyr um þá lagði ég á það þunga áherslu í minni ræðu — og er engu nær eftir svör hæstv. forsætisráðherra hér fyrr í dag og ræðu hæstv. utanríkisráðherra — hvort og þá hvaða skilyrði séu hjá ríkisstjórninni fyrir þessari vegferð sem á núna að reyna að draga íslensku þjóðina í. Hv. þm. Pawel Bartoszek var bara hreinskilinn í ræðu áðan, eins og hann er nú gjarnan, og greindi frá því að í hans huga væri þetta ekki aðalatriðið, hann gekkst við því sem ég vissi; hann hefur alltaf stutt inngöngu Íslands í Evrópusambandið og einhverjar undanþágur eða aðlaganir eru honum ekki mjög ofarlega í huga. En annað hafa hæstv. forsætis- og utanríkisráðherra sagt og auðvitað eigum við að fá að vita það, sjá það svart á hvítu, og fá að heyra það úr þeirra munni hvaða skilyrði þetta eru. Það hefur m.a. verið óskað eftir fundi með hæstv. forsætisráðherra í utanríkismálanefnd um þetta efni. Við hefðum sömuleiðis getað rætt þetta við hæstv. utanríkisráðherra á fundi nefndarinnar í morgun (Forseti hringir.) ef hún hefði orðið við kröfu minni um að mæta þangað í morgun sem hún ekki gerði.