þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég er bara alveg sammála hv. þingmanni og myndi hvetja hv. utanríkismálanefnd til að taka m.a. saman kostnað við aðildarviðræður þegar hún tekur þessa þingsályktunartillögu til meðferðar. Ég hef kannski ekki verið nógu skýr í mínu fyrra andsvari. Ég var ekki að gefa í skyn að þingmenn ættu ekki að taka afstöðu til þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu eftir að þingsályktunartillagan verður hugsanlega samþykkt hér. Ég segi t.d. fyrir mitt leyti að ég mun segja já í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu og ég mun hvetja sem flesta í kringum mig til að gera slíkt hið sama af því að ég er Evrópusinni. (SÁA: Þú veist ekki hvað er í pakkanum.) Ég veit bara mjög vel hvað er í pakkanum en ég trúi því t.d. að við gætum samið um undanþágur er varða t.d. sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna.
Það sem ég ætlaði að segja var að þingmenn eiga að sjálfsögðu að vera virkir þátttakendur í kosningabaráttunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu og myndi ég hvetja hv. þingmenn til að taka virkan þátt í henni. En eftir að Alþingi hefur ákveðið að vísa þessari ákvörðun um hvort eigi að halda áfram eða ekki til þjóðarinnar þá sé ég ekki tilganginn með því að Alþingi þurfi að vera saman komið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar sjálfrar.