þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu sem hæstv. utanríkisráðherra kynnti hér í dag. Ég vil byrja á því, virðulegi forseti, að segja að ég hreyfi engum mótbárum gegn því að íslenska þjóðin fái að greiða atkvæði í þessu máli sem og öðrum stórum málum. Það er rétt nálgun að þjóðin fái að greiða atkvæði þegar mikið er undir eins og í þessu máli. Hins vegar þarf að standa að slíkum málum með ákveðnum myndarbrag. Þjóðin á skilið að þau stjórnvöld sem spyrji setji fram sína eigin röksemdafærslu, greiningu á því af hverju þau telji það vera mikilvægt að skoða þessa leið, hverju ætti að ná fram í viðræðum og hvers vegna þau telji að slíkt sé raunhæft. Fái þjóðin slíka röksemdafærslu getur hún metið hvort hún sé sammála stjórnvöldum um markmiðin, sammála stjórnvöldum um forsendurnar og sömuleiðis getur þingið þá reynt greiningarnar.
En hvað ætti slík greining að fela í sér? Jú, ríkisstjórnin leggur til að halda áfram með viðræður frá árinu 2009 og ég held að við áttum okkur öll á því að frá árinu 2009 hefur margt breyst í íslensku samfélagi. Þar af leiðandi er mikilvægt að skoða hvað hefur breyst frá árinu 2009. Hver var staða Íslands þá og hver er hún nú og hver hefur breytingin orðið sem gerir það að verkum að ríkisstjórnin telur að það sé mikilvægt að halda áfram með þessar viðræður? Sama er í raun og veru hvað varðar Evrópusambandið sjálft. Evrópusambandið er á öðrum stað í dag en það var þá. T.d. er oft talað um hver hin pólitíska staða er í heiminum varðandi öfgaöfl. Við vitum að það hefur margt breyst líka í Evrópu varðandi öfgaöfl og það skiptir máli og það er heiðarlegt sem hluti af þessari umræðu að tala um veikleika og styrkleika Evrópusambandsins í dag, átta okkur á því hverjar eru ólíkar sviðsmyndir um það hvernig Evrópusambandið muni þróast og hvað það muni þýða fyrir íslenska hagsmuni. Framtíð Evrópusambandsins getur orðið misjöfn og það þýðir ólíka hluti fyrir íslenska hagsmuni.
Svo eru fleiri þættir sem skiptir máli að skýra betur. Í fyrsta lagi: Hver hefur reynsla Íslands verið þegar kemur að framsali valds á mikilvægum sviðum, t.d. á sviði orkumála? Hver hefur hún verið innan Evrópulöggjafar? Hefur hún verið jákvæð? Hefur hún verið neikvæð og hvað mun þá sú reynsla þýða í samhengi við aðra grundvallarhagsmuni fyrir íslenskt samfélag sem tengjast sjávarútvegi og landbúnaði, svo dæmi séu tekin? Í annan stað: Hvað á hæstv. ríkisstjórn við þegar talað er um að Evrópusambandið veiti öryggisskjól? Hvað þýðir það til viðbótar við þá stöðu sem við höfum í dag í samhengi við NATO þar sem Evrópuríki eru að vinna að sínum öryggishagsmunum sömuleiðis? Í þriðja lagi, sem kannski er mikilvægast og lykilumræðan í þessari umræðu sem við eigum hér í dag: Hver eru samningsmarkmiðin heilt yfir? Hverjar eru rauðu línurnar sem ríkisstjórnin setur fram? Og af hverju telur hæstv. ríkisstjórn að við náum þeim markmiðum á raunhæfan máta? Hvernig telur hæstv. ríkisstjórn að við náum þeim markmiðum á raunhæfan máta? Þetta er lykilmál að setja fram. Þetta eru allt dæmi um grundvallarspurningar sem faglegt er að ræða um, faglegt og eðlilegt að við fáum að vita áður en þjóðin er spurð, svo allir geti rýnt þær, þjóðin, þingið, allir, áður en við förum í þessa vegferð.
Ég vil líka draga fram að fyrri þingsályktun var tugir blaðsíðna en hér erum við að tala um lítinn pappírspésa. Þess vegna verður slík heildstæð greiningarskýrsla frá ríkisstjórninni, ríkisstjórninni sem er að leiða þjóðina, að vera sett fram, ekki greiningarskýrsla frá Vísindavef Háskóla Íslands eða utanaðkomandi hagsmunasamtökum. Það skiptir máli að ríkisstjórnin sem ber pólitíska ábyrgð á málinu setji fram hvert hún vill fara, af hverju hún vill fara þangað og hvernig hún ætlar að ná þeim markmiðum sem hún setur fram. Þannig getur þjóð og þing rýnt þau markmið og tekið upplýsta afstöðu.
Að framselja vald til alþjóðastofnana á þann hátt sem Evrópusambandið er er nefnilega risastór spurning, hvort sem úr slíkri atkvæðagreiðslu fengist já eða nei. Báðar leiðir eru á ákveðinn hátt mótandi fyrir framtíð Íslands og því þarf undirbúningsvinnan að vera vönduð. Það er allt og sumt. Í mínum huga þarf öll vinna sem snýr að breytingum á utanríkisstefnu Íslands að vera byggð á slíkum greiningum, að vera byggð á slíkri hugsun, slíkri langtímasýn sem nær langt út fyrir þetta kjörtímabil og það á að vera sýn sem breið samstaða er um. Ný stefna í alþjóðamálum á ekki að vera byggð á kosningaloforði einstakra flokka, hún á að hafa breiðara bakland en það. Því hefði verið æskilegt að þessi spurning væri borin upp af ríkisstjórn sem hefði það pólitíska umboð úr kosningum en fyrst svo er ekki þá er jákvætt að hér sé verið að leggja til sérstaka þjóðaratkvæðagreiðslu en þá skiptir líka máli að undirbúningsvinnan sé haldbær, hún sé dýpri en þetta plagg hér býður upp á.
Virðulegi forseti. Ég er almennt hlynnt því að Ísland efli sína alþjóðasamvinnu. Ég tel það vera mikilvægan hluta af styrkleika Íslands að geta átt öflugt alþjóðasamstarf við sem flesta. Það skiptir máli til að geta brugðist við breytingum í heiminum hverju sinni. Ég held að þessi umræða sem við förum í hér eigi ekki að snúast um það hvort Evrópusambandið sé vont eða gott. Við vitum öll að öflugt Evrópusamband hefur stuðlað að friði í Evrópu og friður og velmegun í Evrópu hefur sannarlega nýst Íslandi og íslenskum hagsmunum. Spurningin er hins vegar hvort við teljum að Ísland eigi heima innan Evrópusambandsins. Það er allt önnur spurning og hingað til höfum við verið í þeirri forréttindastöðu að fá margt af því besta úr báðum heimum í gegnum EES-samninginn sem við hefðum kannski oft átt að rækta enn betur og taka öflugri þátt í mótun reglna með þeim leiðum sem við höfum í gegnum samninginn eins og hann er í dag. Sá samningur hefur tryggt það að við höfum full yfirráð yfir okkar eigin fiskimiðum, eitthvað sem við börðumst lengi fyrir, í sjávarútveginum þar sem við höfum byggt upp gríðarlega mikla sérstöðu sem er eðlilegt og sjálfsagt að við viljum vernda. Því er líka spurning um að sú greiningarvinna sem hér fer fram og þarf að fara fram horfi líka til þess hvernig okkur hefur gengið að vernda sérstöðu okkar á þeim sviðum þar sem við höfum mikla sérstöðu en höfum verið að innleiða Evrópulöggjöf. Hvernig hefur okkur t.d. gengið með innleiðingu Evrópulöggjafar í orkumálunum, þar sem við höfum verið fremst meðal jafningja í Evrópu og þótt víðar væri leitað? Hefur innleiðing Evrópulöggjafar styrkt orkumál á Íslandi? Hefur innleiðing Evrópulöggjafar styrkt regluverk og annað?
Ég get nefnt að hér eru áskoranir í samhengi við flækjustig. Hér eru áskoranir sem birtast t.d. í vindorku þar sem við erum með tugi verkefna í erlendri eigu sem er ekki sá veruleiki sem við bjuggum áður við. Jarðalög eru annað dæmi sem gjörbreytti okkar umgjörð. Við innleiddum Evrópulöggjöf á sviði jarðalaga og það þýddi að í dag er hægt að kaupa auðlindir okkar; jarðhita, vatn og aðrar auðlindir vegna þeirra breytinga sem við fórum í. Ég get nefnt annað dæmi sem eru landamærin þar sem okkur, með innleiðingu Evrópulöggjafar, tókst einhvern veginn ekki að vernda þá miklu sérstöðu sem við höfum haft. (Forseti hringir.) Hér vantar því betri greiningu og röksemdafærslu svo við getum tekið upplýsta ákvörðun.
Ég segi að lokum, virðulegi forseti: Staða heimsmála hvetur okkur að mörgu leyti til að velja á milli bandamanna og velja á milli heimshluta (Forseti hringir.) en stærstu tækifæri Íslands eru í því að halda talsambandi opnu við sem flesta. (Forseti hringir.) Hagkerfi Kína rís, Indland er í sókn, Bandaríkin munu þróast, við eigum eftir að sjá hvernig það fer og sama á við um Evrópumálin sem eru á breytingaskeiði.
Ég þakka fyrir þessa umræðu í dag (Forseti hringir.) sem ég vona að við eigum á jákvæðan hátt áfram en skora á ríkisstjórnina að vinna enn meira í málinu.
(Forseti (ÞSv): Forseti hvetur hv. þingmenn til að virða ræðutímann.)