þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég get tekið undir með hv. þingmanni að efnahagslegar landvarnir, eins og hann kom inn á, skipta máli. Við höfum haft þær í samhengi við EES-samninginn. Það eru áskoranir sem þarf að meta. Af því ég kom inn á greiningar og rökstuðning þá er það eitt af því sem ekki er fjallað um í þessari þingsályktunartillögu og er þá eitthvað sem má bæta úr í því ferli sem fram undan er. En við bætum líka og tryggjum okkar efnahagslegu landvarnir með því að vera með fjölbreytta möguleika. Umræðan um Evrópu er ein af þeim en ég vil aftur hvetja til að við séum með breiðari nálgun þegar kemur að þessum málum.
Í stuttu máli get ég tekið undir það að það sé mikilvægt að við séum í öflugu viðskiptasambandi og treystum samskipti okkar við sem flesta en það hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið er líka risastórt mál út frá okkar auðlindum. (Forseti hringir.) Ég vil aftur vísa í það sem ég kom inn á hér áðan að við þurfum aðeins að skoða hvernig okkur hefur gengið í orkumálum, jarðakaupum og öðrum málum (Forseti hringir.) áður en við leggjum mat á svo djörf mál eins og okkar sjávarútveg.