þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir sína ræðu. Mig langar í minni fyrri spurningu að koma mér beint að efninu sem snýr að auðlindum okkar. Eins og ég hef skilið hæstv. ráðherra, og ef ég hef skilið orð hæstv. ráðherra í Silfrinu nú í kvöld rétt, þá sé hægt að hafa varanlegt forræði á eigin auðlindum og öðru sem snýr að orkuauðlindum, fiskveiðiauðlindinni. Trúir hæstv. ráðherra því að það sé hægt að semja þannig að það sé varanlegt forræði á þeim auðlindum sem við nýtum í dag, það sé hægt að semja um það? Miðað við það sem maður heyrir og les í miðlum þá virðist það nú ekki vera að ganga yfir þær þjóðir sem (Forseti hringir.) nú eru innan Evrópusambandsins og má þar nefna Íra í því samhengi.