þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Mig langar að vitna í, með leyfi forseta, skýrslu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands:
„Embættismenn ESB hafa bent á að sjávarútvegsstefnan sé ekki eins stíf og hún er talin og klæðskerasniðnar lausnir séu algengar innan ESB. Hægt sé að finna lausn sem taki mið af óskum Íslendinga og aðstæðum. Í þessu samhengi verður að hafa í huga að aldrei fyrr hefur ríki sem hefur sjávarútveg sem grundvallarhagsmuni sótt um aðild að ESB. Útilokað er að spá fyrir um hvernig slíkar lausnir verði útfærðar. Slíkar æfingar byggjast á getgátum. Ef ætlunin er að fá botn í það álitaefni er nauðsynlegt að klára aðildarviðræðurnar.“
Þetta er það sem ég er alltaf að segja. Þetta eru allt saman getgátur. Ég vil gjarnan ræða um það og rabba um það sem ég veit. Ég ætla ekki að ræða um það sem ég held. Ég er að leita leiðsagnar hjá íslensku þjóðinni og ég treysti henni til þess að átta sig á því að allt sem hefur verið sagt hérna um auðlindir, um það að við missum yfirráð yfir auðlindum — þetta eru ekki bara getgátur, þetta er bara rangt að mínu mati, (Forseti hringir.) af því að við erum í þeirri aðstöðu að geta samið sem fyrsta þjóðin sem er með sjávarútveg sem grunnatvinnuveg.