Störf þingsins.
Frú forseti. Mig langar hér að vekja athygli á því að í gær hélt Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, ræðu á fundi sendiherra Evrópusambandsins í Brussel. Í ræðunni sagði hún m.a. frá varnarsamningum og samkomulögum um varnarsamstarf sem væri verið að gera núna á grundvelli þess sem þegar er til staðar, sem eru níu varnarsamningar við lönd í Evrópu, Asíu og í Norður-Ameríku. Síðan segir frú Kallas, með leyfi forseta:
„Later this week I will sign the tenth with Australia and subsequent ones with Iceland and Ghana in the coming days.“
Frá þessu var sagt í EUobserver seinni partinn í gær. Ég fór að skoða fundargerðir utanríkismálanefndar og eini dagurinn sem þessu gæti verið fyrir komið á er mánudagurinn 10. nóvember þar sem fjallað er um samráð um öryggis- og varnarmál, en um umfjöllun þar er bundinn trúnaður skv. 24. gr. þingskapa.
Frú forseti. Hér virðist enn einn samningurinn vera í uppsiglingu sem á að gera við Evrópusambandið án þess að í neinu sé flaggað hér í þingsal eða um það rætt eða frá því sagt nema mögulega, án þess að ég viti það alveg, að bundnum trúnaði á fundi utanríkismálanefndar þann 10. nóvember síðastliðinn. Í fyrsta lagi er þessi teppalagning með trúnaðarfundum utanríkismálanefndar mjög sérstök. En, frú forseti, ég verð eiginlega að óska eftir því að það verði með einhverjum hætti leitt fram hér í þingsal hvað um er að ræða hér í þessum nýja samningi sem á, samkvæmt Kaju Kallas, að undirrita á næstu dögum.
Eins og Kaja Kallas segir hér: „Seinna í þessari viku mun ég skrifa undir tíunda varnarsamninginn við Ástralíu og í framhaldinu við Ísland og Ghana dagana þar á eftir.“
Frú forseti. Ég óska eftir því að fundinn verði tími hér á dagskrá þingsins til að utanríkisráðherra geti farið yfir hvað í þessu felst og hvað til okkar friðar heyrir í raun í þessum efnum.
(Forseti (ÞSv): Forseti hefur móttekið beiðni þingmannsins og mun athuga málið.)