157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

Störf þingsins.

[13:39]
Horfa

Diljá Ámundadóttir Zoega (V):

Virðulegi forseti. Við tölum stundum um að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn enda þurfum við foreldrar jafnan stoð frá fleiri manneskjum þegar við erum að koma börnum okkar til manns. Við getum þetta aldrei alein. Sum börn og foreldrar þurfa á stærra þorpi að halda en önnur. Mér verður hugsað til barnanna Ölmu, Nóa, Geirs, Maríu, Adríans, Þorleifs, Úlfars, Kristjáns, Bergs, Perlu, Hávarðs, Fannars, Sölva, Thelmu, Baldurs, Kristófers og Jóhanns sem hafa ásamt öðrum börnum dáið úr fíkni- og geðsjúkdómi á síðastliðnum árum. Blessuð sé minning þeirra. Allt voru þetta dýrmætar manneskjur sem voru og verða elskaðar af foreldrum sínum og öðrum aðstandendum.

Ég velti því fyrir mér hvort við sem búum hér í þessu litla sjávarþorpi á eyju á hjara veraldar gætum kannski reynt að stækka þorpið okkar með því að eiga í markvissu samstarfi við önnur þorp á meginlandinu. Við þurfum nefnilega að horfast í augu við það að við höfum ekki alltaf burði til að bjóða upp á það sama og fjölmennari og stærri samfélög geta. Slíkt samstarf gæti aukið á aðgengi að úrræðum sem veita samhliða geð- og fíknimeðferð fyrir börn, jafnvel með sérstakri nálgun fyrir einhverf börn, a.m.k. þangað til við sjáum slík úrræði rísa hér á landi. Með markvissu samstarfi getum við hlúð að öryggistilfinningu þessara fjölskyldna og dregið úr þessum viðvarandi og sársaukafulla ótta um að missa barnið sitt. Það er vitað mál að taugakerfi foreldra barna með sjúkdóma á borð við þessa er að fuðra upp. Mæður og feður eru komin í algera örmögnun og dottin út af vinnumarkaði, sum tímabundið, önnur á örorku til frambúðar. Allt þetta kostar samfélagið gríðarlega fjármuni, jafnvel um 2 milljónir á dag, ein manneskja, líkt og hinn 18 ára Gauti Einarsson og foreldrar hans hafa bent okkur á en þau hafa verið gjöful á að veita okkur innlit inn í reynsluheim sinn síðastliðnar vikurnar. Ég hlakka til samtals við ykkur, kæru félagar, hér á þingi um hvernig við getum (Forseti hringir.) stækkað okkar þorp, eða með öðrum orðum, kerfi, þá sérstaklega fyrir þau sem mest þurfa á því að halda. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )