Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég kom hér í pontu í dag til að ræða frelsismál sem skiptir mig máli, mjög miklu máli, en ákvað á síðustu stundu að skipta um og breyta til og tala um annað málefni sem stendur mér enn nærri. Þann 10. mars 2015 var öndunarvélin tekin úr sambandi. Eftir stóð ég ein, 32 ára gömul með þrjú börn, eins, fimm og 13 ára, og þurfti að fóta mig á ný í nýjum raunveruleika. Ég var mjög heppin því ég á góða og samheldna fjölskyldu, stóran vinahóp og bý í einstöku samfélagi. Ég var heppin að þau gripu mig en það eru ekki allir svona heppnir. Ljónshjarta greip mig og börnin mín og ég þakka enn þann dag í dag þeim góðu samtökum sem grípa unga foreldra sem hafa misst maka og eru að fóta sig í lífinu á ný.
Við sem erum kjörin inn á Alþingi Íslendinga erum kosin af þjóðinni til að gegna þingstörfum og vinna að hagsmunum lands og þjóðar. Við getum verið ósammála um aðferðirnar og leiðirnar að markmiðunum en fyrst og síðast vinnum við hér til að gera samfélagið okkar betra. Betur má ef duga skal.
Forseti. 11 árum síðar upp á dag stend ég hér í pontu á Alþingi til að láta gott af mér leiða fyrir samfélagið í heild. Standa í 3.000 fetum og meta eftir bestu getu hvað er rétt á hverjum tímapunkti. Í þessum 3.000 fetum skiptir ekki máli hvernig spurningin hljómar; áframhaldandi viðræður að ESB eða hvort hefja eigi viðræður. Kjarni málsins er skýr og við treystum þjóðinni til að taka afstöðu. Ég stend með ríkisstjórn sem hugar að almannahagsmunum framar sérhagsmunum en umfram allt stend ég með fólkinu í landinu sem kallar eftir betra heilbrigðiskerfi, bættri þjónustu og auknum úrræðum fyrir börn og ungmenni.