157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

Störf þingsins.

[13:43]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Í áratugi hafa Vestfirðir verið eina heila landsvæðið á Íslandi sem hringvegurinn liggur ekki um. Þó er hlutverk hringvegarins einmitt að tengja saman landshluta og tryggja grunnsamgöngur fyrir fólk, atvinnulíf og þjónustu um allt land. Nýlega skilaði starfshópur sem innviðaráðherra skipaði niðurstöðum sínum um mikilvægt samgöngumál Vestfirðinga. Niðurstaðan er skýr, að skilgreina Vestfjarðaveg, veg 60, og Djúpveg, veg 61, sem hluta af hringvegi 1, alþjóðavegi landsins. Það er stórt skref. Undanfarin ár hafa samgöngur á Vestfjörðum tekið miklum framförum. Dýrafjarðargöng, vegabætur um Dynjandisheiði og framkvæmdir í Gufudalssveit hafa gjörbreytt aðgengi að svæðinu. Það er farið að sjá fyrir endann á þessari uppbyggingu og samgöngukerfið á Vestfjörðum er að taka á sig allt aðra mynd en áður. Þetta er í raun og veru alger bylting. Í því samhengi er rökrétt að staða Vestfjarða í samgöngukerfi landsins endurspegli þessa þróun. Starfshópurinn taldi að hugmyndin um svokallaðan hringveg 2 hefði takmarkað gildi. Þess í stað er lagt til að tengja Vestfirði beint inn í burðarás samgangna á Íslandi, sjálfan hringveginn. Það er því ekki aðeins táknræn breyting heldur viðurkenning á því að Vestfirðir eiga að standa jafnfætis öðrum landshlutum þegar kemur að grunninnviðum landsins. Það skiptir máli fyrir byggðaþróun, fyrir atvinnulíf og fyrir daglegt líf fólks sem býr og starfar á Vestfjörðum.

Virðulegi forseti. Samgöngur eru ekki bara vegir á korti, þær eru lífæðar byggða og þess vegna er mikilvægt að halda áfram þeirri uppbyggingu sem þegar er hafin og tryggja að Vestfirðir séu raunverulega tengdir við landið allt. Þessi tillaga er því skref í rétta átt.