Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það er áhyggjuefni að hver félagsskapurinn á fætur öðrum hafi séð sig knúinn til að beita sér gegn kjarabótum til handa öryrkjum og ellilífeyrisþegum og það hefur þó einkum félagsskapur þeirra sem eru ofan á; það eru silkihúfurnar í landinu sem hafa komið með ályktanir og haldið jafnvel fundi um málið, jafnvel félag á borð við Læknafélag Íslands lagðist svo lágt og Samtök atvinnulífsins héldu fund þar sem flestum öðrum var boðið en einmitt þeim sem rætt var um. Það voru þá öryrkjar og ellilífeyrisþegar. En hvaðan kemur þessi áhugi og hvað er það sem rekur t.d. Samtök atvinnulífsins til að að leggja til þeirra sem lökust hafa kjörin? Ef það væri raunverulegur áhugi á að koma í veg fyrir höfrungastökk og sjálfvirkar hækkanir væri miklu nær að beina spjótum sínum gegn verðtryggingunni eða vaxtastiginu í landinu. Mögulega koma þessar hækkanir þá ekki niður á þeim sem eru í stjórnum Samtaka atvinnulífsins en það gera þær svo sannarlega hjá þeim sem reka megnið af fyrirtækjunum í landinu. Það sem hefur eiginlega verið einna ógeðfelldast við þessa aðför er að hún hefur byggst á villandi málflutningi, m.a. um að hér væri öryrkjum að fjölga úr hófi. Svo er alls ekki. Hlutfallslega hefur orðið fækkun í hópi öryrkja miðað við landsmenn. Sú fjölgun sem hefur orðið hjá þeim sem hafa notið endurhæfingarlífeyris skýrist fyrst og fremst af því að bótatímabilið hefur lengst. Það er ljótur leikur að rembast áfram við að reyna að halda bláfátækasta fólkinu í landinu í fátæktargildru sem það getur ekki brotist út úr. Ég ætlast til meira, (Forseti hringir.) og ég trúi því að landsmenn geri það almennt, af þeim sem eru í stjórn atvinnulífsins í landinu.