157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

Störf þingsins.

[13:57]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf):

Frú forseti. Ný kjarakönnun AFLs starfsgreinafélags varpar ljósi á stöðuna í leikskólamálum á Austurlandi og sérstaklega í Fjarðabyggð, í mínum heimabæ. Niðurstöðurnar eru sláandi. Þar segjast 83% foreldra vera frekar eða mjög óánægð með breytingar á opnunartíma og gjaldskrá leikskóla. Yfir helmingur segir vistunartíma barna sinna hafa styst og 36% foreldra hafa þurft að breyta vinnutíma sínum vegna breytinganna. Í öllum tilvikum eru það konur sem hafa þurft að minnka starfshlutfall sitt. Það er grafalvarlegt. Þegar leikskólaþjónusta versnar er það ekki bara skipulagsmál, það er jafnréttismál og kjaramál. Það eru konur sem bera byrðarnar þegar kerfið þrengist. Laun þeirra eru nú þegar lægri og þegar kostnaðurinn hækkar og vistun styttist eru það konur sem draga sig úr vinnu. En þetta hefur líka langtímaafleiðingar því að þegar konur minnka starfshlutfall sitt lækka tekjur þeirra og þar með lífeyrisréttindi þeirra til framtíðar. Þannig hafa ákvarðanir í leikskólamálum ekki aðeins áhrif í dag heldur hafa þau áhrif á fjárhagslegt öryggi kvenna á efri árum.

Þetta snýst líka um stöðu láglaunafólks, um fólk sem þarf að vinna meira til að ná endum saman en er samt látið greiða meira fyrir þjónustu sem hefur jafnvel styst. Þetta er líka fólk í lægst launuðu störfunum sem hefur oft ekki þann sveigjanleika sem þarf til að breyta vinnutíma sínum. Það þarf einfaldlega að standa vaktina. Þetta snýst um einstæða foreldra, um innflytjendur og um fólk sem hefur lítið bakland, sem getur ekki treyst á fjölskyldu til að brúa bilið þegar leikskólakerfið bregst. Leikskólar eru ekki þjónusta sem hægt er að vera án. Þeir eru grunnforsenda atvinnuþátttöku og jafnréttis. Þegar kerfið bregst bitnar það fyrst og fremst á þeim sem minnst svigrúm hafa.