157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

Störf þingsins.

[14:04]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Frú forseti. Ég ætlaði mér að koma hérna upp og ræða þingmál sem ég hyggst flytja er varðar lausasölu lyfja en ég get ekki annað gert en að nýta þessar tvær mínútur sem ég hef hér til að bregðast við sumu af því sem hefur komið fram í ræðum hér undir liðnum störf þingsins eftir ansi hreint skemmtilegan dag í gær um það sjálfsagða mál að leyfa þjóðinni að taka endanlega ákvörðun um það hvort við eigum að halda áfram með þá vegferð að sækja um aðild að Evrópusambandinu eða ekki. Það virðist vera einhver frústrasjón í stjórnarandstöðunni að þau séu ekki lengur við völd og geti bara ráðið þessu sjálf með því að senda eitt bréf án nokkurs samráðs. En nei, nú ætlum við að leyfa þjóðinni að ráða.

Hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir endurtók það sem hefur heyrst áður um að ekkert hafi verið talað um þetta í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Ég er ekkert að ætlast til þess að hv. þingmaður hafi verið að hlusta á það sem við frambjóðendur Viðreisnar vorum að segja í aðdraganda kosninganna en það kom alltaf mjög skýrt fram, og þetta hefur verið í stefnuskrá Viðreisnar og loforð okkar frá upphafi, að þjóðin fengi að segja sitt um þetta mál. Hv. þm. Jón Pétur Zimsen sagði að ef það væri ekki þingmeirihluti fyrir þessu þá værum við ekkert að boða neina þjóðaratkvæðagreiðslu. Jafnvel þó að Viðreisn hefði fengið hreinan meiri hluta í seinustu kosningum þá værum við að gera akkúrat það sem við erum að gera núna, enda lofuðum við þjóðinni að hún myndi fá að segja sitt í þjóðaratkvæðagreiðslu og við munum standa við það, annað en hv. þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks gerðu á sínum tíma þegar þeir lofuðu því að það yrði haldin atkvæðagreiðsla sem var ekki gert. Hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir talaði um að það væri vanvirðing við sveitarstjórnarkosningar eða sveitarstjórnarstigið að halda þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég hef kannski meiri trú á þjóðinni en hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir. Ég hef fulla trú á því að íslensk þjóð geti tekið upplýsta ákvörðun um það í maí í sveitarstjórnarkosningum hverja hún vill kjósa til forystu og síðan þremur mánuðum síðar tekið upplýsta ákvörðun um hvort halda eigi áfram með aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið eða ekki.

Ég mun að sjálfsögðu halda áfram að ræða þetta mál á eftir þegar ég flyt mína fyrstu ræðu í umræðu um málið og fæ einhvern tímann síðar að flytja ræðuna sem ég ætlaði að flytja í þessum lið. [Hlátur í þingsal.]