þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni kærlega fyrir sitt andsvar. Ég gleymdi að skrifa niður spurningarnar sem hann beindi til mín en ég vona að ég hafi náð þeim. (GÞÞ: Bara ein.) — Það var bara ein spurning.
Ég vil byrja á að bregðast við því sem hv. þingmaður sagði varðandi umræðu um Evrópusambandið í aðdraganda kosninganna. Það var eitt af því sem ég gerði að hluta til í minni ræðu og við áttum mjög góða umræðu hér í gær um Evrópusambandið sjálft og hvaða kostir og gallar myndu felast í mögulegri inngöngu Íslands í Evrópusambandið, þannig að ég óttast ekki umræðu um kosti og galla Evrópusambandsins. En það er ekki það sem þessi tiltekna þingsályktunartillaga snýst um. Hún snýst um það að halda þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þjóðin fær að taka þá ákvörðun og við hér, 63 þingmenn, getum síðan tekið þátt í þeirri kosningabaráttu á sömu forsendum og allir aðrir kosningabærir einstaklingar í þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu.
Varðandi sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna. Ég get ekki talað fyrir hönd hæstv. utanríkisráðherra en ég segi fyrir mitt leyti: Ég er mjög bjartsýnn á, vegna þess að Ísland er ólíkt öllum öðrum Evrópusambandsríkjum þegar kemur að sjávarútvegi og er ekki hluti af strandlengju meginlands Evrópu, að við gætum samið um varanlegar undanþágur frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Þess vegna ætla ég t.d. að kjósa já, því að ég er bjartsýnn á að við munum ná því. Ef það tekst ekki og innganga Íslands í Evrópusambandið myndi fela í sér að við gæfum eftir yfirráð yfir íslensku fiskveiðiauðlindinni þá myndi ég leggjast gegn endanlegri aðild Íslands að Evrópusambandinu.