157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:22]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ef ég skil það rétt þá er hv. þingmaður að segja: Ég er bjartsýnn á að við fáum undanþágu frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Ef við fáum það ekki þá ætla ég ekki að greiða atkvæði með aðild. Og hv. þingmaður kinkar kolli. Þetta eru fréttir fyrir fréttamenn og þjóð. Mér finnst þetta bara áhugavert og skýrara en hjá hæstv. ráðherra, en við munum auðvitað ganga á hann.

Nú er því mikið haldið fram, sem er svolítið nýstárlegt, að það sé gild umsögn, að við séum í rauninni umsóknarríki og höfum verið það allan tímann. Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af því að Evrópusambandið (Forseti hringir.) er búið að skrökva að öllum allan þennan tíma? Það er ákveðin staða að vera umsóknarríki (Forseti hringir.) en við erum það ekki. Höfum ekki verið það. Það er alveg skýrt þegar þú flettir upp hjá Evrópusambandinu að Ísland er ekki tilgreint sem umsóknarríki. Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur, úr því að Evrópusambandið skrökvaði þessu, (Forseti hringir.) að þeir skrökvi einhverju fleiru, stórmálum?