þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu og hann kemur hér að nokkru leyti hreint fram. Ég deili því með hv. þingmanni að vilja vernda íslenskan sjávarútveg og auðlindir Íslands og að með engum hætti sé þeim fórnað fyrir inngöngu í ESB. En sjálfur hef ég velt því fyrir mér um hvað er að semja. Hver ráðamaðurinn í ESB hefur komið fram og sagt að það séu engar varanlegar undanþágur í boði og ekkert umsóknarríki, ekkert, hefur fengið varanlegar undanþágur frá yfirstjórn ESB, ekkert umsóknarríki. Það þýðir að það þarf að semja um t.d. sjávarútveg og landbúnað og orkumálin. Spurning mín til hv. þm. Ingvars Þóroddssonar er: Hvers vegna ætti Ísland að verða fyrsta umsóknarríkið sem fengi varanlegar undanþágur frá yfirstjórn ESB? Hér er ég ekki að tala um einhverjar sérlausnir. Hér er ég að tala um varanlegar undanþágur umsóknarríkis. Ég fullyrði að ekkert þannig ríki hefur fengið varanlegar undanþágur þannig að spurningin er af hverju Ísland ætti að fá þær.
Við vitum að Norðmenn reyndu að semja við ESB um ákveðnar veiðar norðarlega í Noregi, þar sem strandlengja Noregs er langt norðarlega og þar eru stofnar sem ESB var ekki að veiða úr. Þeir fengu nei við því. Þannig að mín spurning er: Hvers vegna ætti Ísland að vera fyrsta umsóknarríkið sem fengi varanlegar undanþágur frá yfirstjórn ESB?