157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:27]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ísland yrði ekki fyrsta landið sem myndi semja um varanlegar undanþágur frá meginreglum ef við myndum ganga þarna inn. Ég held að það sé nokkurn veginn svo, þannig að spurning hv. þingmanns felur einfaldlega í sér rangfærslu. Jú, jú, við getum alltaf skoðað söguna, t.d. hvers konar umræður áttu sér stað varðandi norskan sjávarútveg þegar Norðmenn sóttu um aðild að Evrópusambandinu. En þetta eru allt saman bara einhverjar getgátur. Staða Íslands — við munum ekki vita hvað við gætum samið um er varðar sjávarútveginn fyrr en við látum á það reyna. Þetta eru allt saman bara einhverjar getgátur. Strandlengja Noregs er t.d. hluti af strandlengju meginlands Evrópu, ekki Íslands. Jú, auðvitað er fínt að taka þessa umræðu en við vitum ekki hvað við getum samið um fyrr en við látum á það reyna.