157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:30]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Fyrsta spurningin kom nokkurn veginn eins fram aftur og þá ítreka ég bara mitt svar. Ég skil ekki spurningu hv. þingmanns öðruvísi en að hún byggi á rangfærslum því að víst hafa ríki fengið varanlegar undanþágur frá meginreglum Evrópusambandsins. Ég heyri hvað hv. þingmaður er að segja en ekkert af því sem hann segir eru rök gegn því að halda þessa þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þjóðinni verður falið að taka ákvörðun um það hvort við eigum að halda áfram þar sem frá var horfið með aðildarviðræður að Evrópusambandinu eða ekki.