157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:35]
Horfa

Eiríkur S. Svavarsson (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni Ingvari Þóroddssyni fyrir hans svar sem í raun var ekkert svar. Ef það er þannig að hér á að ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem gengið er út frá þeirri forsendu að það sé eitthvað til sem heitir varanlegar undanþágur þá getur það ekki öðruvísi gerst, á þeim grunni sem ferlið hefur verið í, en að það eigi að taka upp samningsrammann og breyta honum. Ég vil fá svar við því hvernig hv. þingmaður, sem er hluti af þeim flokki sem flytur þetta mál hér á þingi, sér fyrir sér að við breytum samningsramma sem liggur fyrir samþykktur milli þessara aðila.