157. löggjafarþing — 81. fundur, 10. mars 2026.
þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
516. mál
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Eiríki S. Svavarssyni fyrir hans síðara andsvar. Þetta er að mínu mati allt bara einhver hringavitleysa. Ekkert af þessu eru rök gegn því að þjóðin fái að ákveða hvort við eigum að halda áfram eða ekki. Ef það þarf að endurskoða samningsrammann frá því seinast þá bara gerum við það. Ef hv. þingmaður er ekki sáttur með mitt svar þá lít ég ekki á það sem mitt vandamál. (Gripið fram í: Ja hérna hér. )