157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:36]
Horfa

Sigurður Helgi Pálmason (Flf):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi að nýju viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Það er mikilvægt að halda því skýrt til haga frá upphafi að hér er ekki um kosningar að ræða heldur þjóðaratkvæðagreiðslu. Munurinn er ekki bara orðalag, hann snýst um sjálfan kjarna málsins. Hér er verið að leita beins vilja þjóðarinnar í stóru og afdrifaríku máli.

Flokkur fólksins hefur allt frá upphafi lagt mikla áherslu á aukið beint lýðræði. Við höfum ítrekað sagt að þegar stór mál eru undir, mál sem snerta fullveldi, framtíð og grundvallarhagsmuni þjóðarinnar, eigi þjóðin sjálf að fá að segja sitt. Þess vegna er það fullkomlega í samræmi við stefnu flokksins að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi á ný viðræður við Evrópusambandið. Það er hins vegar jafn mikilvægt að skýra hvað þessi þjóðaratkvæðagreiðsla snýst um og hvað hún snýst ekki um. Hér er ekki verið að biðja þjóðina um að samþykkja eða hafna aðild Íslands að Evrópusambandinu. Hér er aðeins verið að spyrja hvort hefja eigi viðræður á ný. Það er grundvallarmunur. Skiptar skoðanir eru og munu alltaf verða um um það hverju hægt sé að ná fram í slíkum viðræðum, sérstaklega þegar kemur að stærstu hagsmunamálum Íslendinga eins og sjávarútvegi, landbúnaði og yfirráðum yfir auðlindum. En það væri fráleitt að ætlast til þess að þjóðin taki afstöðu til aðildar núna þegar engin niðurstaða liggur fyrir. Það er einfaldlega ekki eðlilegt að segja já eða nei við samningi sem hefur ekki verið gerður. Þess vegna er sú leið sem hér er farin skynsamleg. Fyrst fær þjóðin að segja hvort hún vilji að viðræður fari fram. Ef þjóðin segir já, þá fara viðræður fram. Þegar þeim lýkur og niðurstaða liggur fyrir þá fær þjóðin aftur orðið og getur samþykkt eða hafnað þeim samningi sem þá liggur á borðinu. Þetta er skýrt ferli. Þetta er heiðarlegt ferli og þetta er lýðræðislegt ferli.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar var kveðið á um að fram færu tvær þjóðaratkvæðagreiðslur um Evrópumál eigi síðar en árið 2027. Sú fyrri er sú sem við ræðum hér í dag, hvort hefja eigi viðræður. Sú síðari mun snúast um niðurstöðu viðræðna, ef til þeirra kemur. Þannig ræði þjóðin framhaldinu skref fyrir skref.

Ég vil einnig segja eitt skýrt í þessari umræðu: Það fer best á því að hver flokkur svari fyrir sína stefnu í Evrópumálum. Þingmenn Flokks fólksins þurfa enga aðstoð frá öðrum flokkum við að túlka stefnu flokksins eða afstöðu hans til einstakra mála. Við stöndum fyllilega á eigin fótum í þessu máli eins og öðrum. Við styðjum þessa þjóðaratkvæðagreiðslu, ekki vegna þess að við séum sammála öllum um Evrópusambandið. Við styðjum hana vegna þess að við treystum þjóðinni. Við treystum þjóðinni til að meta hvort rétt sé að hefja viðræður. Við treystum þjóðinni til að meta niðurstöðuna þegar hún liggur fyrir og við treystum þjóðinni til að taka afstöðu í stærstu málum sem snerta framtíð Íslands.

Virðulegur forseti. Þessi tillaga er ekki bara um Evrópumál. Hún er um lýðræði. Hún er um traust til þjóðarinnar. Hún er um þá grundvallarhugmynd að valdið eigi ekki aðeins að vera hér inni í þessum sal heldur hjá fólkinu í landinu. Þingmenn Flokks fólksins fagna því að efnt skuli til þeirrar lýðræðisveislu sem þessi þingsályktunartillaga felur í sér. Við teljum rétt að þjóðin fái að segja sitt og við treystum henni fullkomlega til að taka afstöðu í þessu stóra og mikilvæga grundvallarmáli um framtíð þjóðarinnar.