157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:41]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hv. þingmaður lagði gríðarlega áherslu á að Flokkur fólksins vildi beint lýðræði í stórum málum. Af hverju flutti þá Flokkur fólksins, ekki einu sinni, ekki tvisvar, ekki þrisvar heldur sex sinnum þingsályktunartillögu um að draga til baka aðildarviðræðurnar án þess að spyrja þjóðina?

Svo er það hitt að hv. þingmaður talaði ekkert efnislega um málið í rauninni en eftir því sem ég best veit er hann varaformaður í utanríkismálanefnd. Ég er með tvær spurningar: Mun hv. þingmaður tryggja að það fari fram eðlileg umræða í þingnefndinni, þar með talið að almenningur hafi aðgang að fundargerðum frá því að við vorum í síðustu aðlögunarviðræðum? Og síðan varðandi sjávarútvegsstefnuna sem við erum að reyna að fá svör við frá ríkisstjórnarflokkunum. Það er ekki hægt að túlka orð hæstv. ráðherra öðruvísi en þannig að við eigum ekki að vera aðilar (Forseti hringir.) að sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni og ég vil gjarnan fá svör hv. þingmanns um það: Er það eitthvað (Forseti hringir.) sem skiptir einhverju máli? Hvernig á að túlka orð forystumanna ríkisstjórnarinnar?