þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir spurningarnar. Ég alla vega persónulega tel það mun betra að við séum að leysa kannski þessa óvissu um hvort við hefðum slitið þessum viðræðum eða ekki, hvort erum við að fara til baka eða áfram? Ég held að með þessu núna, með því að fara í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu, þá fáum við það í raun og veru bara skýrt, vegna þess að það virðist vera þannig að túlkanir séu misjafnar á því hvort menn haldi að þessu hafi verið lokið eða ekki. Með því að fara þessa leið komum við bara í veg fyrir það.
Varðandi það hvernig eigi að halda á þessu í utanríkismálanefnd þá held ég að það verði bara gert eins vel og mögulegt er. Það er rosalega góður og hefur verið góður andi í utanríkismálanefnd og ég hef ekki fundið það á neinum að það eigi að koma í veg fyrir einhverjar upplýsingar.