þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Með mestu vinsemd, er hv. þingmaður til í að svara spurningunum? (SHP: Svara? )Spurningunum. Ég spurði hv. þingmann: Úr því að Flokkur fólksins er svona fylgjandi þjóðaratkvæði, af hverju flutti hann þá sex sinnum mál um að draga aðildarviðræður til baka án þess að spyrja þjóðina — sex sinnum? Síðan er hitt að það er ekki hægt að túlka orð hæstv. utanríkisráðherra og forsætisráðherra öðruvísi en að það sé inni í þessu skilyrði af hálfu ríkisstjórnarflokkanna um að við séum ekki aðilar að sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni og ég spyr þess vegna hv. þingmann: Er það ekki örugglega svo? Er það ekki forsenda? Það getur ekki verið þegar menn segjast ætla að halda forræði yfir sjávarútveginum að menn ætli að vera í sameiginlegri stefnu sem er stýrt frá Brussel. Það er útilokað. Er það ekki örugglega þannig (Forseti hringir.) að skilyrði ríkisstjórnarflokkanna er að við verðum ekki aðilar að sameiginlegri sjávarútvegsstefnu?