157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:45]
Horfa

Sigurður Helgi Pálmason (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Varðandi þessi sex skipti sem þú talar um þá var það kannski leið til að fá einhverja niðurstöðu, hvort þetta væri í gangi eða ekki. Mér finnst það bara eðlilegt þegar flokkur eins og Flokkur fólksins vill að það sé svona ákveðinn skýrleiki í þessu máli, að þá séum við að biðja um að þetta sé tekið til baka. Annaðhvort er þetta tekið til baka eða þetta er ekki tekið til baka. (GÞÞ: Þið getið spurt þjóðina.) Með því að spyrja þjóðina erum við bara komin með niðurstöðu. Nú vitum við bara nákvæmlega, vegna þess að það skiptir máli hvaða flokkur er að tala um þetta mál, hvort þetta hefði verið tekið til baka eða ekki, þannig að með því að fá þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta fáum við að vita það nákvæmlega, vegna þess að sá aðili sem tekur þessa ákvörðun er þjóðin. (Gripið fram í.)Hún á síðasta orðið í öllu sem er hérna í gangi og hún á alltaf að hafa síðasta orðið. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)