157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:46]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og fagna því að hér sé kominn þingmaður Flokks fólksins til þess að ræða þetta mál við okkur. Mér fannst kannski vanta inn í ræðu hans þessi grundvallaratriði sem við höfum verið að ræða varðandi Evrópusambandið sjálft. Ég hef sjálfur talið það mjög mikilvægt að við höfum upplýsingagjöf mjög góða í kringum þetta mál og að við vöndum til verka, eins og þingmaðurinn þekkir sjálfur, bæði í utanríkismálanefnd og í umræðunni almennt, að við tölum um staðreyndir og séum viðbúin því, eins og hefur gerst annars staðar, að það komi til einhvers konar falsfrétta á báða bóga hvað þetta varðar.

Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann, í ljósi orða forsætisráðherra þegar þingsályktunartillagan var kynnt um að við þyrftum ekki að vita allt um Evrópusambandið til að taka ákvörðun um að segja já eða nei í þetta skiptið: (Forseti hringir.) Skiptir yfir höfuð einhverju máli að við vitum eitthvað um ESB áður en við förum í þessa atkvæðagreiðslu?