157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:52]
Horfa

Sigurður Helgi Pálmason (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Ég mun gera allt í mínu valdi til að láta umræðuna í utanríkismálanefnd vera sem jafnasta fyrir alla aðila og það hefur verið í öllum málum sem ég hef unnið inni í utanríkismálanefnd. Varðandi það hvort þetta séu svik við kjósendur Flokks fólksins þá ætla ég að svara á mjög einfaldan hátt: Nei, vegna þess að við erum þarna að færa valdið til þjóðarinnar að ákveða þetta. Við erum ekki að taka fram fyrir hendurnar á þjóðinni með það hvort svarið verður já eða nei. Við gefum öllum í okkar flokki tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum áfram sem eru þá annaðhvort já eða nei, vegna þess að í Flokki fólksins eru skiptar skoðanir eins og í öllum flokkum og þetta á að viðgangast hjá öllum flokkum.