157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:53]
Horfa

Eiríkur S. Svavarsson (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir svarið. Ég vil hins vegar benda á það að ég treysti þjóðinni rétt eins og þú treystir þjóðinni. (Gripið fram í.) En þetta er ekki alveg eins og að kaupa kók úti í búð. Þetta er bara þannig að það þarf að vanda svona ferli, það þarf að undirbúa það á allan hátt og gæta að því að allar upplýsingar um það séu fyrirliggjandi. Það vantar alveg í þetta ferli. Þau voru heldur rýr svörin varðandi stefnu þíns flokks sem er alveg afdráttarlaus þess efnis að flokkurinn vill ekki ganga í Evrópusambandið. Ég vil þess vegna ítreka spurningu mína og biðja þig um að gera mér einhverja grein fyrir því hvernig á því stendur að flokkurinn fari í þetta ferli núna því að þetta getur þýtt að þið standið uppi með svartapétur þegar kemur að seinni hlutanum í þessu máli.

(Forseti (BHar): Forseti vill minna þingmenn á að vísa til hver annars með fullu nafni eða kenna þingmann við kjördæmi.)