157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:55]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Helga Pálmasyni fyrir ræðuna og fyrir hans innlegg í umræðuna. Hann talar um traust til þjóðarinnar og lýðræðisveislu. Svo segir hann hérna í andsvörum að þetta sé bara ofureinfalt að segja já eða nei. Þetta er bara ekkert svo ofureinfalt. Mig langar líka að taka það fram að mér fannst átakanlegt að fylgjast með formanni hans flokks á blaðamannafundinum síðastliðinn föstudag þar sem gleðin skein úr andliti hinna tveggja formannanna en skein ekki úr andliti Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, enda á móti ESB-aðild alla vega hingað til en ætlar að styðja bjölluatið.

En mig langar að spyrja þingmanninn, þó að hann hafi ekki farið mikið inn í efnisatriði þingsályktunartillögunnar, út í hvernig hann sjái fyrir sér að forræði þjóðarinnar verði tryggt yfir fiskveiðiauðlindinni ef það verður samþykkt að fara í þessar aðlögunarviðræður. Hvernig telur hann að forræði yfir fiskveiðiauðlindinni, fullt forræði, verði tryggt?