157. löggjafarþing — 81. fundur, 10. mars 2026.
þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
516. mál
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir síðara andsvar. Ég bara þekki ekki alla þessa 27 aðila til að geta svarað þessari spurningu. Ég hef ekki verið í beinum samskiptum við þetta fólk. Ég held að besta svarið sé svona: Ég hef ekki verið í beinum samskiptum við forsætisráðherra eða aðila þessara landa. Það er svona hreinasta svarið sem ég get svarað.