157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:00]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Ríkisstjórnin hefur sem kunnugt er ákveðið að hér fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um inngöngu í Evrópusambandið 29. ágúst næstkomandi. Ég segi að hér sé stefnt að inngöngu í ESB og er með því að vísa í orðalag sambandsins sjálfs í gögnum þess um umsóknarferli. Það kemur skýrt fram að markmiðið með umsókn er innganga í ESB.

Frú forseti. Það er nefnilega ekkert til sem heitir að kíkja í pakkann eða kanna hvað sé í boði. Pakkinn er í öllu falli þá algjörlega opinn. Þetta hefur margoft komið fram hjá forystumönnum innan sambandsins og öðrum pólitískum áhrifamönnum þar. Við getum tekið dæmi af Uffe heitnum Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur og formanni Venstre, sem er systurflokkur Viðreisnar. Þegar hann var spurður um málflutninginn hér á landi um lokaðan pakka, í viðtali 6. mars 2017, sagði hann, með leyfi forseta:

„Vitanlega er Evr­ópusambandið ekki lokaður pakki. Þið vitið hvað þið væruð að fara út í. Og ef þið eruð ekki reiðubúin til þess, haldið ykkur þá fyrir utan sambandið. Það er það besta sem þið getið gert.“

Jensen er ekki einn um þetta. Olli Rehn, fyrrverandi stækkunarstjóri sambandsins, hefur sagt, með leyfi forseta:

„Ef ég nota myndlíkingu þína þá eru spil Evrópusambandsins þegar á borðinu, fyrir allra augum. Það er að segja regluverk Evrópusambandsins og meginreglur þess.“

Hvers vegna ættu þessir herramenn að segja ósatt í þessum efnum, pólitískir forystumenn innan ESB og þar á meðal fulltrúar sambandsins, skoðanabræður íslenskra ESB-sinna?

Frú forseti. Hér er ekki um viðræður að ræða heldur umsóknarferli. ESB segir annað og það segir reynsla annarra ríkja sem hafa sótt um inngöngu í sambandið. Við getum tekið upplýsingabækling sem ESB hefur gefið út til að útskýra umsóknarferlið, með leyfi forseta:

Viðfangsefni samningaviðræðna um inngöngu [í Evrópusambandið] er geta umsóknarríkis til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja veru í sambandinu. Hugtakið „samningaviðræður“ getur verið villandi.“

Þetta kemur fram í efni ESB og ég held áfram:

„Viðræðurnar snúast um skilyrði og tímasetningar upptöku, innleiðingar og framkvæmdar umsóknarríkis á reglum Evrópusambandsins […] sem eru ekki umsemjanlegar.“

Ég vil árétta það, frú forseti, að þetta er úr upplýsingabæklingi ESB sjálfs. Og það er meira af þessu í spurt og svarað kaflanum á heimasíðu ESB, með leyfi forseta:

„Umsóknarríki verða að samþykkja regluverkið áður en þau geta gengið í Evrópusambandið og gera það að hluta af landslögum sínum. Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. […] Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið …“ — eins og það leggur sig enda er það eðli sambanda sem þessara.

Með öðrum orðum, það er svo sannarlega ekki um að ræða einungis einfaldar viðræður heldur umsóknarferli sem gengur fyrst og fremst út á það að aðlagast regluverki ESB, réttnefndar aðlögunarviðræður.

Tökum eitt dæmi enn, orð Mörtu Kos, sem menn hafa ítrekað vitnað í hér, en Marta Kos er núverandi stækkunarstjóri ESB. Hún talaði við norska ríkisútvarpið 21. maí í fyrra þar sem hún var spurð út í ferlið og hvort það væri hægt að fá varanlegar undanþágur, t.d. í sjávarútvegi og landbúnaðarmálum. Hún sagði, með leyfi forseta:

„Þetta snýst að miklu leyti um það að aðlaga löggjöf umsóknarríkisins að löggjöf Evrópusambandsins. Almennt verða ný ríki að samþykkja allar reglurnar en stundum er mögulegt að fá aðlögunartímabil.“

Sem sagt, engar undanþágur. Þetta snýst að miklu leyti um aðlögun, frú forseti. Hvers vegna segja þá ESB-sinnar hér á landi, með hæstv. ráðherra í broddi fylkingar, að ekki sé um aðlögunarferli að ræða þegar forystumenn ESB segja það og þegar gögn sambandsins segja það og þegar reynsla annarra ríkja sýnir það? Hæstv. ráðherrar eru skíthræddir við upplýsingar og þjóðina.

Frú forseti. Fyrir helgi sagði Heather Grabbe, sérfræðingur í málefnum ESB og fyrrverandi aðalráðgjafi Olli Rehn, við RÚV, með leyfi forseta:

„95% af regluverki Evrópusambandsins er ekki umsemjanlegt vegna þess að það hefur þegar verið samþykkt af 27 ríkjum, önnur ríki hafa gengið í sambandið og orðið að samþykkja það allt. En ríki sem vill inngöngu getur alltaf samið um tímalínuna fyrir innleiðingu regluverks Evrópusambandsins. […] Þannig að það er svigrúm til þess að semja um aðlögunartíma en það eru engar“ — ég endurtek, engar — „varanlegar undanþágur í boði lengur.“

Hægt er að semja um tímalínuna, hvenær farið er undir vald ESB, en ekki hvort. Þetta er einmitt reynsla bæði Noregs og Möltu. Stjórnvöld beggja landa vildu halda yfirstjórn sjávarútvegsmála innan sinna vébanda og fóru fram á varanlega undanþágu í þeim efnum. Báðar þjóðir fengu nei. Norðmenn óskuðu meira að segja aðeins eftir því að fá stjórn á eigin fiskimiðum norðan 62.° norðlægrar breiddar, einkum með þeim rökum að þar væru fiskstofnar sem þeir deildu ekki með ESB og einnig að þar væru byggðir sem væru mjög háðar fiskveiðum. Nei, sagði sambandið. Sambandið sagði nei. Norðmenn fengu aðeins tímabundna aðlögun til tæplega fjögurra ára. Eftir það færi sjávarútvegur þeirra undir stjórn ESB. Eyjan Malta vildi einnig halda yfirstjórn sinna sjávarútvegsmála en fékk að sama skapi nei. Niðurstaðan var sérstök aðlögun en ESB-sinnar hér á landi hafa kosið að kalla það sérlausn. Norska Stórþingið hafnaði á dögunum með miklum meiri hluta þingsályktunartillögu Venstre, systurflokks Viðreisnar, um að ríkisstjórninni yrði falið að taka inngöngu í ESB til skoðunar, þar á meðal með atkvæðum þingmanna Verkamannaflokksins, systurflokks Samfylkingarinnar. (IngÞ: En Sjálfstæðisflokks? ) Norðmenn eru augljóslega ekki á leiðinni í sambandið.

Frú forseti. Hæstv. ráðherrum hefur einnig orðið tíðrætt um að treysta þjóðinni en það er augljóst að þeir treysta henni ekki fyrir sannleikanum. Þeir treysta henni ekki fyrir þessum upplýsingum, að menn viti hvað þeir fara út í ef þeir segja já í ágúst. Þeir treysta henni ekki fyrir staðreyndum málsins. Þeir vilja ekki að þjóðin viti hvað það þýðir í raun og veru að segja já í ágúst. Þeir vilja að hún haldi einungis að hér sé um einfaldar viðræður að ræða þegar bókstaflega allt segir annað. Þetta rímar einnig við dagsetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem hefur vakið ákveðna furðu. Hvers vegna í lok sumars? Kosningabaráttan mun fara fram um sumar þegar flestir eru í sumarfríi og þingið ekki starfandi. Hvers vegna var ekki hægt að seinka þessu um mánuð? Skiptir mánuður virkilega öllu til og frá?

En, frú forseti, það er einungis ein rökrétt skýring á þessu. Ríkisstjórnin veit að meiri tími og meiri upplýsingar þýða meiri andstöðu við inngöngu. Það sýna dæmin og það sýnir reynsla. Viðreisn liggur á. Tíminn vinnur ekki með henni. Hitt málið hennar er að fara í vaskinn.

Frú forseti. Ég vil nefna eitt til viðbótar undir lokin. Það er hið svokallaða sæti við borðið eins og ESB-sinnar vilja gjarnan orða það. Það er blekkjandi málflutningur. Kíkjum aðeins undir húddið. Á þingi ESB fengi Ísland sex þingmenn af vel yfir 700. Yfirfært yfir á okkar virðulega Alþingi væri það u.þ.b. hálfur þingmaður. Staðan yrði enn verri í ráðherraráði sambandsins, valdamestu stofnun þess. Þar er alfarið miðað við íbúafjölda og þá yrði vægi Íslands aðeins 0,08%. Fræðast má um þetta allt saman sem ég hef rætt hér á vefsíðum ESB. Þetta er ekki eitthvað sem sá sem hér stendur er að kokka upp. Þetta er ESB að segja. Þar má t.d. sjá að til að hafa sama vægi og Þýskaland eitt þyrfti 17 fámennari ríki ESB, 17 af þeim 27 í heildina, flestar milljónaþjóðir. Ekki er hægt að samþykkja neitt í ráðinu nema alla vega fjórar af fjölmennustu þjóðunum samþykki það. Stærstu ríkin ráða algerlega ferðinni.

Tíminn er liðinn, frú forseti, en mig langar að ljúka þessu með þessu: (Forseti hringir.) Við Sjálfstæðismenn treystum þjóðinni fyrir upplýsingum þó að ríkisstjórnin geri það augljóslega ekki. (Forseti hringir.) Við munum leggja okkar af mörkum til að tryggja að upplýst umræða fari fram um málið þrátt fyrir augljósa viðleitni ríkisstjórnarinnar (Forseti hringir.) til að reyna að lágmarka svigrúm í þeim efnum. Við treystum þjóðinni.