þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Hér í umræðunni í dag hefur mikið verið rætt um mikilvægi þess að fá sem mest af upplýsingum svo fólk gangi upplýstara að þessum raunar villandi spurningum. Það er reyndar búið að koma fram á blaðamannafundi nýlega. Þar mælti hæstv. forsætisráðherra á þá leið að við þyrftum ekki svo mikið af upplýsingum, við þyrftum ekki að vita allt um Evrópusambandið til að geta tekið afstöðu. Það er talað um að spyrja þjóðina og þetta hljómar eins og falleg tónlist. En þjóðin spurði ítrekað í aðdraganda kosninganna um afstöðu forystufólks allra flokka, hvað það hygðist fyrir varðandi Evrópusambandið. Þar voru svör hæstv. forsætisráðherra algerlega skýr. Þetta mál væri einfaldlega ekki á dagskrá fyrr en búið væri að ná tökum á mun mikilvægari verkefnum hér innan lands. (Forseti hringir.) Telur hv. þm. Jón Pétur Zimsen að það sem nú er í gangi samræmist þessum loforðum?